- Fréttir 2004 -
1. september
Steinunni vegnar vel í endurhæfingunni, þó er ekki enn vitað hvenær hún útskrifast og þar af leiðandi ekki vitað hvenær næsta got verður. Búið er að koma öllum hundunum fyrir á góðum heimilum og er öllum þeim sem sýnt hafa málinu áhuga og boðið fram aðstoð færðar kærar þakkir.
16. júní
Þann 17. apríl veiktist Steinunn alvarlega og er viðbúið að hún verði í endurhæfingu allt þetta ár. Af þessum sökum er verið að leita eftir fósturforeldrum fyrir 3 fullorðna hunda.
Þeir sem áhuga hafa fyrir málinu geta haft samband við Jakob (695-9123) eða Unnu (891-7161) eða heimasímann 567-2165.
10. febrúar
Jæja, þá er bara einn hvolpur eftir á heimilinu og það er orðið ansi tómlegt. Hann verður sóttur nk. laugardag af nýju fjölskyldunni sinni. Það gengur vel hjá öllum nýju Basenji eigendunum og allir hvolparnir braggast vel. Nýjar myndir af hvolpunum verða settar inn mjög fljótlega.
20. janúar
Búið að uppfæra sýningasíðuna, og setja upp lista yfir þá Basenji hunda sem hafa hlotið meistarastig á sýningum HRFÍ. Einnig komnar inn myndir af hvolpunum, þær má skoða á hvolpasíðunni.
14. janúar
Jæja, heimasíðan loksins uppfærð. Hvolparnir dafna vel, farnir að hlaupa um allt og nú þarf að passa á sér tærnar þegar maður gengur um. Þeim finnst mjög gaman að bíta í þær :)