- Um ræktandann -

Mig hafði lengi dreymt um að eignast Basenji og hóf að undirbúa innflutning árið 1997. Ég komst í kynni við virtan ræktanda í Finnlandi, Tiinu Taavitsainen, og fékk hún það erfiða hlutverk að velja fyrsta Basenji hundinn sem kæmi til Íslands. Og eftir langa bið kom loks að því, í nóvember '98 fæddist Bulldobas Name is Kiljan. Ég ákvað að byrja á að flytja inn einn hund, svo ég gæti kynnst tegundinni áður en ég færi í ræktun. Kiljan kom úr einangrun í júní '99 og stuttu seinna fór ég að leita að tík. Það var engin spurning, þetta var tegund sem ég hafði mikinn áhuga á að rækta. Ég fann tík í Bandaríkjunum sem hentaði Kiljan mínum vel, og það var hún Signet Regalia of Bedlam ( Kleó ). Kleó kláraði meistaratitilinn í Bandaríkjunum áður en hún kom til mín. Kleó kom svo úr einangrun í maí '00.

Þannig hófst nú þessi ræktun hjá mér, í dag á ég 4 Basenji hunda og það er oft líf og fjör á heimilinu mínu.

 

- Heim -